Jæja eftir að hafa tekið mér mjög langa pásu þá hef ég ákveðið að byrja að blogga aftur og er þessi ákvörðun tekinn í fullri sátt við þjóðkirkjuna, Guðmund í byrginu og framsóknarmenn, eða ætti maður kannski að segja framsóknarmann miðað við núverandi fylgi þeirra. Hvað um það þá finnst mér orðið helvíti hart að geta ekki orðið skilið bílinn sinn eftir ólæstan á næturnar hérna á tanganum, Því ég var helvíti hissa þegar ég var að koma norður fyrir nokkru þegar ég sá Jeppa út á miðjum vegi í Borgarfirðinum ég bölsótaðist mikið yfir því hvaða asni legði bílnum þarna og það nánast á miðjum vegi. Jeppin þótt mér samt mjög kunnulegur og sömuleiðist númerið þegar ég brunaði framhjá(á löglegum hraða að sjálfsögðu) eftir símtal við föður minn þá kom reynar í ljós að þetta var Jeppin okkar og hafði honum verið stolið fyrrum morguninn, þjófurinn má þó eiga það að hann var snjall og húkkaði far með lögguni í Borgarnes eftir að jeppin hafði verið bensínlaus og því náðist hann nú fljótt. Vill samt biðja hann um að skila kúbeininu sem hann stal úr bílnum enda er þetta ættargripur sem ekki verður metinn til fjár. Svo er söngvarkeppnin næstu helgi ég á eyrnatappa til sölu ef eitthverjum langar í, en þá ætlaði ég að nota ef Haddú myndi taka aftur þátt er ekki fráþví að það hafi verra að hlusta á það en að Horfa á myndbandið með Guðmundi í Byrginu, en hvort tveggja er mjög slæmt á sinn hátt. En ætla ekki að hafa þetta lengra í bili adios..........
Wednesday, April 25, 2007
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)
|